KAABER HÚSIÐ
Árið 1946 reisti O. Johnson & Kaaber nýtt verksmiðjuhús við Sætún fyrir kaffibrennslu og aðra starfsemi. Kaffibrennsla var starfrækt í þessu fallega húsi fram eftir 7. áratug síðustu aldar en var síðar nýtt undir lager o.fl.
Skapalón flutti á fyrstu hæð hússins þann 1. júlí 2011 og líkar afskaplega vel vistin enda góðir grannar í hverju horni.
Í húsinu eru einnig fyrirtæki sem tengjast öll miðlun, hönnun og markaðssetningu að ólíku leyti. Saman mynda þau krafthús í boðmiðlun. Auglýsingastofan Fíton, hreyfimyndasmiðjan Miðstræti, birtinga- og rannsóknafyrirtækið Auglýsingamiðlun. Kunnátta þessara fyrirtækja gefa tilefni til samstarfs á fjölmörgum sviðum sem opnar fyrir fjölda möguleika. Í risi Kaaber-hússins er aðsetur Fréttatímans.