Um Verkefnið
Í rúm 11 ár hafa Eskimos lagt metnað í að skipuleggja ferðir og upplifanir fyrir erlenda ferðamenn ásamt viðburðastjórnun fyrir helstu fyrirtæki og stofnanir landsins. Í nánu samstarfi við Skapalón var ráðist í að endurhanna alla vefi fyrirtækisins frá grunni. Lögð var rík áhersla á birtingu á myndefni til þess að skapa rétta stemningu þegar notendur vafra um vefinn. Notendum gefst kostur á því að safna ferðum saman í "bakpoka" og geta svo sent inn fyrirspurnir fyrir margar ferðir í einu. Við erum stolt af þessu ánægjulega samstarfi og þá sérstaklega afrakstur þess.