Um Verkefnið
Það var ánægjulegt verkefni að leiða saman hugmyndaauðgina úr smiðju Fíton við okkar eigin og marka fersk spor í framsetningu auglýsingastofa á vefnum. Í þessu verkefni fær sköpunargleði Fíton að njóta sín með því að fullnýta skjáin með verkefnum úr þeirra smiðju. Í verkinu var gengið á landamærum gagnvirkni og hönnunar svo efnið gæti notið sín sem best og upplifun notenda yrði sem mest.