Upplifun á vefnum!

Við einblínum á að verkin okkar uppfylli ströngustu kröfur notenda og að áferð þeirra endurpsegli heildarímynd viðskiptavina okkar. Skapalón trúir á einfaldleika, upplifun og ásýnd !

 

Hér er hægt að skoða brot þeirra verkefna sem við höfum komið að, við munum bæta við á næstu dögum.

tiles list
Alvogen
vefur

Alvogen er alþjóðlegt lyfjafyrirtæki sem leggur ríka áherslu á fágaða og lifandi ímynd. Fyrsta verk okkar með fyrirtækinu var að gera fyrirtækjasíðu sem endurspeglaði þeirra stefnu, í framhaldi höfum við unnið fjölda vefa fyrir fyrirtækið m.a. viðamikinn innri vef, vörumerkjavef ásamt vefi fyrir starfsemi fyrirtækisins í Bandaríkjunum, Kína og Rúmeníu.

Arion
farsímavefur

Nýr farsímavefur Arion Banka hefur upp á að bjóða lykilþjónustu bankans á vefnum ásamt handhægum upplýsingum í símann þinn. Vefurinn verður reglulega uppfærður á næstu misserum.

Bestu lög símans
vefur

Fáðu aðgang að „Bestu lögunum“, tónlistarrásum fyrir öll hugsanleg tækifæri. Tónlistarrásirnar eru valdar af fagaðilum, DJ-um, tónlistarunnendum og tónlistarmönnum sem gjörþekkja tónlistarsmekk Íslendinga. Tónlistinni er svo einfaldlega streymt um netið í símanum eða tölvunni.

Billetlugen
vefur

Viðamikill miðasöluvefur í Danmörku sem hlaut hin Dönsku Vefverðlaun fyrir bestu vefverslun Danmerkur, Det er meget godt ! 

Eskimos
vefsíður eskimos

Í rúm 11 ár hafa Eskimos lagt metnað í að skipuleggja ferðir og upplifanir fyrir erlenda ferðamenn ásamt viðburðastjórnun fyrir helstu fyrirtæki og stofnanir landsins. Í nánu samstarfi við Skapalón var ráðist í að endurhanna alla vefi fyrirtækisins frá grunni.  Lögð var rík áhersla á birtingu á myndefni til þess að skapa rétta stemningu þegar notendur vafra um vefinn.  Notendum gefst kostur á því að safna ferðum saman í "bakpoka" og geta svo sent inn fyrirspurnir fyrir margar ferðir í einu. Við erum stolt af þessu ánægjulega samstarfi og þá sérstaklega afrakstur þess.

Fíton
vefur

Það var ánægjulegt verkefni að leiða saman hugmyndaauðgina úr smiðju Fíton við okkar eigin og marka fersk spor í framsetningu auglýsingastofa á vefnum. Í þessu verkefni fær sköpunargleði Fíton að njóta sín með því að fullnýta skjáin með verkefnum úr þeirra smiðju. Í verkinu var gengið á landamærum gagnvirkni og hönnunar svo efnið gæti notið sín sem best og upplifun notenda yrði sem mest.

Flybus
vefur

Skýrt, einfallt, smekklegt !

Icelandic Glacial
sócíal

Facebook herferð hjá Iceland Glacial, þessi vel framsetti leikur með vinningi til eyjunnar Íslands var vel tekið og þátttaka góð.

Íslandsbanki
app

Á einu ári hefur orðið um 350% aukning á umferð um vefi bankans með farsímum og spjaldtölvum. Með Appi Íslandsbanka kemur bankinn því til móts við þarfir ört vaxandi fjölda viðskiptavina með Smart síma og Spjaldtölvur.

Lazytown
vefur

Allt fullt af ávaxtanammi og orku, það var gaman að vinna með lifandi efni og karakterum úr þessari þekktu seríu. Fullt af fróðleik og fjöri !

Marel
vefur

Ársskýrsla Marel hf. fyrir árið 2011 var í fyrsta skipti gefin út í gagnvirkri vefútgáfu þar sem m.a. er boðið upp á margmiðlunarefni, gagnvirkar töflur og gröf. Við óskum Marel til hamingju fyrir þann metnað að  stíga þetta skref til fulls og virkja vefmiðilinn á þann hátt sem hér er gert.

Meniga
vefur

Meniga hefur hjálpað mér að ná tökum á fjármálum heimilisins á mjög einfaldan hátt. Með því að fá tölvupóst á hverjum degi varðandi markmið mín hef ég náð neyslu niður um tugi þúsunda.
- Kona á fertugsaldri

Next2Live
vefur

Next2Live er danskur vefur þar sem hægt er að nálgast tónleikaupptökur á stafrænu formi eftir tónleika sem notendur hafa farið á eða komust ekki á. Frábært konsept og magnaður vefur.

Rauði kross Íslands
vefur

Hreyfing Rauða krossins og Rauða hálfmánans er útbreiddasta og fjölmennasta mannúðarhreyfing heims með starfsemi í flestum ríkjum. Tilgangur hreyfingarinnar er að vernda líf og heilsu berskjaldaðra hópa og tryggja virðingu fyrir mannlegu lífi. Hreyfingin byggist á sjálfboðnu starfi.

RÚV
farsímavefur

Til hamingju RÚV með sérsniðinn farsímavef !

RÚV
vefur

Það var mikill heiður að taka þátt í því að uppfæra vefi RÚV í nýtt og heildstætt útlit. Sumir segja að þessi vefur sé frábær og tökum við undir það.

Síminn
vefur

siminn.is er viðamikil þjónustu-og upplýsingavefur fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Skýr, vel framsettur og grafískur tónar hann vel við almennar markaðsherferðir fyrirtækisins og hátt þjónustustig.

Skapalón
framúrskarandi vefstofa

 

Skapalón
Sætún 8
105 Reykjavík
+354 516 9000
info@skapalon.is